Það kom að norðan

5 HAFIÐ GEFUR Ég heiti Arna. Ég er fjórtán ára. Ég er ein af þeim sem lifðu af. Ég veit ekki hvað fólk heldur að hafi gerst, en ég skal gera mitt besta að segja frá minni upplifun af atburðum helgarinnar. Þetta mun hljóma ótrúlega en ég sver að þetta er allt saman dagsatt. Ef þú ert að lesa þetta bréf, þá er enn von. Ég skal byrja á byrjuninni. Ísjakinn kom að landi í byrjun ágúst. Gömlu karlarnir sem höfðu búið á Siglufirði alla sína tíð stóðu niðri við höfn og skeggræddu uppruna hans meðan hópur sjómanna dró hann upp úr sjónum. Kannski kom hann frá Grænlandi, Svalbarða eða jafnvel alla leið frá

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=