Það kom að norðan

67 reist var Davor búinn að fleygja kveikjar- anum sínum í pollinn. Rauðglóandi eldur gaus upp og áhrifin létu ekki á sér standa. Kvikindið innan í egginu skrækti hærra en áður og iðaði. Bæjarbúarnir, allir sem einn, féllu niður á hnén og öskruðu af sársauka þrátt fyrir að vera hvergi nærri logunum. Ég togaði Ingu á fætur og við settum stefnuna á út- ganginn. Nokkrir bæjarbúar hlupu klunnalega að egginu og köstuðu sér á bálið til að vernda það. En um leið og þeir snertu logana rifnuðu líkamar þeirra sundur á hræðilegan hátt og allskyns armar og fálmarar brutust út. Hvert sem litið var sáum við fólk stökkbreytast. Svart blóð frussaðist yfir okkur og beittar klær klór- uðu til okkar. Svartur reykur skar í augun og lætin voru hræðileg en við héldum áfram að hlaupa.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=