Það kom að norðan

59 ELSKU BÖRN Það var farið að rökkva þegar ég rankaði við mér. Ég lá ekki lengur á innanverðu þakinu á sendiferðabílnum hans Ragga. Ég var sitjandi með bakið í eitthvað kalt og hart. Þegar ég opnaði augun sá ég varla handa minna skil. Ég áttaði mig strax á því að ég var innandyra og að rýmið væri stórt. Tveir gluggar í fjarska hleyptu daufri kvöld- skímunni inn og gerðu mér kleift að sjá útlínurnar á höndunum á mér. Um leið og ég hreyfði mig fann ég fyrir fjölmörgum skurðum og sárum eftir bílveltuna. Ég þreifaði í kringum mig og fann fyrir Ingu systur og Davor sitjandi beggja vegna við mig. Davor var með meðvitund en Inga systir var enn að vakna úr rotinu. Hann var dauðfeginn að heyra að það væri í lagi með mig. Hann útskýrði fyrir mér að hópur

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=