Það kom að norðan

56 grunaði að hún hefði eitthvað að gera með þetta egg sem dregið var á land daginn áður. Hann hafði verið á fótum alla nóttina og séð fólk yfirgefa heimili sín í hrönnum en aðeins hluti þeirra sneri aftur. Grunsemdir hans um að eitthvað væri í ólagi voru staðfestar þegar hópur af sjómönnum réðust á hann með hræðilegum klóm og ógeðslegum, beittum tönnum. Hann sagði að allir sem væru sýktir væru tengdir. „Eitthvað er að stjórna þeim öllum.“ Hann hafði keyrt suður að Héðinsfjarðar- göngum en lenti þar á vegatálmanum og Geir. Þess vegna vorum við á norðurleið núna. Við keyrðum meðfram sjónum og áður en við vissum af vorum við komin að Strákagöngum. Ég hafði alltaf verið smeyk við þessi göng. Þau voru svo þröng og dimm. Við brunuðum allt of hratt inn í þau og allt varð svart. Davor kom þá með ansi góða spurningu. Hvers vegna vorum við fjögur ekki sýkt?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=