Það kom að norðan

17 „Hvern fjandann þykist þið vera að gera við bílinn minn, krakkaskrattarnir ykkar? Vitið þið hvað hann kostar? Hafið þið efni á að laga hann? Ha?“ Meira að segja kötturinn hætti að hreyfa sig og starði á þessa kolbrjáluðu konu. Þórdís var þekkt fyrir að vera alltaf í vondu skapi. Hún hafði áður öskrað á okkur fyrir það eitt að koma nálægt hótelinu. Ég veit ekki hvað varð til þess að hún hataði börn en það hlaut að hafa verið eitthvað svakalegt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=