Stöngin inn
LESTRARRÁÐ! Kæri nemandi Allir námsmenn þurfa að temja sér góðar námsvenjur. Hér eru góð ráð sem gætu hjálpað þér við lestur. Áður en þú byrjar lesturinn Skoðaðu bókina vel, einnig myndir og ramma. Lestu efnisyfirlit og kaflaheiti. Um hvað fjallar bókin? Hvað veist þú um efnið? Á meðan þú lest Finndu aðalatriðin. Skrifaðu hjá þér minnispunkta. Gott er að gera skýringarmyndir eða hugarkort. Spurðu um það sem þú skilur ekki, t.d. orð og orðasambönd. Eftir lesturinn Rifjaðu upp það sem þú last. Veltu fyrir þér hvað eru aðalatriði og hvaða atriði skipta minna máli. Hugsaðu um það sem þú hefur lært og tengdu við það sem þú vissir áður. Reyndu að endursegja textann með eigin orðum.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=