Sófus og svínið

18 Sjóni læknir tók á móti Sófusi og svíninu sama dag. – Við skulum komast að því hvað er að, sagði hann. Svínið fékk skrýtin gleraugu til að lesa af spjaldi með stórum og litlum stöfum en svínið gat ekkert lesið. – Þetta er alvarlegt mál, sagði Sjóni. Honum létti þegar svínið sagði að það kynni ekki að lesa. Þá fékk það myndir til þess að skoða. Eftir að hafa prófað alls konar gler og tæki komst Sjóni að því að svínið sæi mjög illa og þyrfti að fá sterk gleraugu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=