Sófus og svínið

16 Morguninn eftir fóru Sófus og svínið í gönguferð því það er hollt að hreyfa sig og vera úti. Þeir gengu framhjá hús- inu hans Grjóna sem ræktaði lífrænt grænmeti í garð- inum sínum. Svínið tók ofan og sagði: – Góðan daginn, Grjóni minn, mikið vex grænmetið þitt hratt. Sófus snarstansaði og kippti í svínið. – Það var fuglahræðan hans Grjóna sem þú varst að heilsa. Nú held ég að ég viti hvers vegna okkur gengur svona illa, sagði Sófus og kímdi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=