Sófus og svínið

14 – Og hún er alls ekki græn og varirnar eru ekki fjólubláar og … og … þetta er skelfilegt klúður. Sófus varð steinhissa og flýtti sér að segja að þetta væri bara uppkast og hann hefði komið of snemma til að skoða myndina. Hún yrði tilbúin eftir viku. Manninum létti og sagðist myndi koma að viku liðinni. Um kvöldið kom maðurinn til þess að skoða málverkið. Honum leist illa á það sem hann sá. – Æ, æ, konan mín, konan mín …, stamaði karlinn. Sófus var viss um að hann væri svona ánægður. – Konan mín er ekki í laginu eins og svín, hrópaði hann.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=