Snorra saga

III Fósturbarn S norra fannst ferðalagið austur í Odda á Rangárvöllum næstum endalaust. Hann sat á hestinum fyrir framan pabba sinn og horfði undrandi í kringum sig. Hann hefði aldrei grunað að heimurinn væri svona stór og fjölbreytt­ ur. Heimafjöllin gjörbreyttust þegar þau tóku að fjarlægjast og hurfu svo alveg. Við tóku ný og ný fjöll, nýir bæir og nýtt fólk. Stundum sofnaði hann á hestinum og vaknaði svo allt í einu og þá voru þeir kannski úti í miðri á eða uppi á fjalli. 14

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=