Smátímasögur - Fyrir þig

39 Hvað var hann að gera með riffilskot? Það náði þvert yfir lófann svo oddurinn stóð út úr hnefanum. Áður en honum gafst ráðrúm til að rifja upp hvers vegna hann héldi á riffilskoti heyrði hann lágvært hljóð einhvers staðar í myrkrinu. Það virtist eiga upptök sín annars staðar í húsinu. Hann hlustaði um stund en gat ekki áttað sig á hvað þetta var. Smám saman dofnaði hljóðið og dó út.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=