Smásagnarsmáræði

92 - Smásagnasmáræði ekkert meira, bara þessi yfirlýsing. Ég yppti öxlum og beið með að svara. Þá bætti hún við að ég hefði eiginlega misst mig yfir þessu verki, tár hefðu flætt og hor líka, hún hefði strokið á mér lærið en ég ekki tekið eftir neinu. Útvarpið var nokkuð hátt stillt eftir að við hlustuðum á fréttirnar fyrr um kvöldið. Þáttarstjórnandi kynnti lag með Foo Fighters, Times Like These . Ég hafði oft heyrt það áður, jafnvel sungið með í partíum – en nú þagði ég, og þegar Grohl söng viðlagið í annað sinn benti ég á útvarpið og hélt fingrinum sperrtum þar til Íris áttaði sig á að þetta var svar mitt við grátinum: „Á tímum sem þessum lærirðu að lifa á nýjan leik.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=