Smásagnarsmáræði

64 - Smásagnasmáræði kolli. „Ég ætla að kanna hvernig ástandið er frammi, gefðu mér fimm mínútur,“ sagði Linda svo og skildi mig og Júlíu ein eftir á meðan. Júlía stóð upp. „Takk fyrir þetta,“ sagði hún lágum rómi og brosti vandræðalega til mín í gegnum tárin. Hún hafði aldrei verið eins falleg. Í rauðum kjól og greinilega búin að hafa mikið fyrir því að gera sig fína. Eins og leikkona í gamalli bíómynd. Ég vissi ekkert hvað ég átti að segja. Mig sveið að innan við að heyra Júlíu þakka mér. Ég stamaði þó upp úr mér að það væri ekkert að þakka og bætti við: „Rikki er náttúrulega mesta fífl í heimi. Það hefði hver sem er gert þetta.“ „Ekki fyrir mig,“ sagði hún og bætti við kaldhæðnislega: „Ekki fyrir mestu hóru skólans.“ „Ekki segja þetta. Ekki láta þetta hafa áhrif á þig,“ sagði ég. „Það er auðvelt fyrir þig að segja svona. Það var ekki verið að sýna píkumyndir af þér á tjaldi fyrir framan allan skólann,“ sagði Júlía ákveðin.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=