Smásagnasmáræði

46 - Smásagnasmáræði sæta og skemmtilega konan sem allir elska að elska. Pabbi, ég og allur heimurinn. - - - Það líður ekki sá dagur að það standi ekki eitthvað í blöðunum um hvað mamma sé sæt. Alltaf myndir af henni skælbrosandi yfir fyrirsögnum á borð við: Stella Finns stal senunni! Stella Finns kosin kynþokkafyllsta kona ársins! Stella Finns leikkona: Hollywood-útlit sem segir sex! Stella Finns kennir kynsystrum sínum fegurðarleyndarmálin! Þetta síðasta var þegar hún hélt námskeiðið. Ef konurnar þar hefðu nú bara hitt mig. Þær hefðu heimtað að fá endurgreitt á staðnum. Já, hefðu æpt upp yfir sig: Hvað er þessi ljóta stelpa að gera hérna? Þú sagðir okkur ekki að þú ættir feita, asnalega dóttur með spangir og bólur. Ábyggilega ekki að ástæðulausu sem ég fékk ekki að aðstoða hana á þessu námskeiði eins og á leiklistarnámskeiðinu fyrir ofvirku krakkana sem slitu næstum því af mér hausinn. - - - Sólrún, komdu og talaðu við okkur! hrópar hún sykursætri röddu. Maður hefur ekki sést svo lengi, elskan! Það talar enginn svona vitlaust nema hún. Það gerir heldur enginn svona eins og hún. Af hverju skynjar hún ekki að ég

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=