Smásagnarsmáræði

dularfullur og þegar Bjössi bóndi sagðist ætla að kíkja í pakk- ann eftir að Rögnvaldur væri sofnaður faldi hann pakkann úti í hesthúsi í básnum hans Sveips. Rögnvaldur hefði betur sleppt því þar sem Sveipur át innihald pakkans, næstum eins og það lagði sig. Það hefði ekki gert neitt til út af fyrir sig ef þetta hefði verið lopahúfa frá ömmu hans Rögnvaldar eins og Rögnvaldur sagði en þar sem þetta var kynþokkalyf frá Kína gerði það mjög mikið til. Lyfið átti að gera Rögnvald að kvennabósa og alger- lega ómótstæðilegan en endaði með að gera Sveip að algerlega ómót- stæðilegum hryssubósa. Ég var inni í hesthúsi að gefa þegar lyfið fór að virka og mamma, ég get svarið það, bogna bananabakið á Sveipi breyttist í kryppu. Síðan hneggjaði hann rosalega, stökk yfir hliðið á básnum sínum og valhoppaði út með brjál- æðislegt bros á vör þannig að kanínutennurnar Elsku mamma - 137

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=