Smásagnarsmáræði

136 - Smásagnasmáræði bænum? Í minningum mínum úr sveitinni þá voru þeir svo ómótstæðilega sætir. Færð þú að gefa þeim úr pela nokkuð? Ég er búin að vera að hugsa þetta með páfagaukinn og er farin að hallast að því að það sé ekki svo slæm hugmynd, mun betri en að vera með rottur í hamstrabúri í íbúðinni. Ég er ekki einu sinni viss um að húsfélagið myndi leyfa slíkt. Jæja elsku Didda mín, ég hlakka til að fá tölvupóst frá þér en þangað til verð ég að láta mér nægja að hugsa til þín. - Koss, koss, mamma Elsku mamma Hér eru engir heimalingar mamma því Bjössi bóndi á eina gamla kind sem tekur öll mömmulaus lömb í fóstur. Kindin heitir Angelina Jolie eftir útlensku leikkonunni. Vá, hér hefur sko ýmislegt gerst frá því að ég skrifaði þér síðast. Rögnvaldur rauði gerði þvílíkan skandal að ég hélt að Bjössi bóndi myndi reka hann eða drepa hann eða reka hann og drepa hann svo. Aumingja Rögn- valdur ég skil ekki hvernig hann gat verið svona vitlaus. Hann hafði fengið pakka í póstinum í síðustu viku og vildi ekki segja okkur hvað væri í honum. Hann varð rosalega

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=