40751 Megináherslur í skriftarnámsefni á þrepi tvö eru að nemendur beiti réttum stafdrætti og tileinki sér réttar tengingar við ritun hálftengdrar ítalíuskriftar. Í þjálfuninni er tækifærið notað til að kynna fyrir nemendum ritun algengra orða og einfaldar reglur í réttritun. Í þessari bók, Skrift 2b, er lögð áhersla á að vinna áfram með tengingar í gegnum stafafjölskyldur en samhliða skriftar- þjálfun eru stafsetningarreglur kynntar og æfðar auk þess sem nokkur verkefni hafa það að markmiði að samþætta skrift, stafsetningu og ritun. Í Skrift 2a er kynning á stafafjölskyldum þar sem þær eru fyrst æfðar saman án tenginga en síðan eru tengingar kynntar og æfðar. Aftast í bókunum eru leiðbeiningar til kennara en ítarlegar kennsluleiðbeiningar eru á mms.is. Höfundur er Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir Myndhöfundur er Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=