Skrift 2a og 2b - kennsluleiðbeiningar

53 52 Sjálfsmat Nemendur meta vinnu sína með því að svara spurningum í gátlista. Nemendur meta hvort þeir hafi alltaf skrifað lágstaf á eftir raðtölu og hvort það eigi að vera hástafur á eftir spurningarmerki og upphrópunarmerki. Bls. 56 og 57 Innlögn Kennari fer vel yfir það með nemendum hvað er á myndunum á síðum 56 og 57. Þar er strákur á skautum og stelpa að sparka í fótbolta. Á báðum síðum eru línur þar sem nemendur eiga að skrifa málsgreinar eða sögur um myndirnar. Kennari minnir nemendur á að muna eftir reglunni um stóran staf og punkt ásamt því að muna eftir öllu sem þeir hafa þegar lært í tengdri skrift. Verkefni Nemendur skrifa málsgreinar eða sögu við myndirnar. Meistaralína Sjá inngangskafla. Bls. 58–63: Tengd skrift æfð óháð stafafjölskyldum Hugtök: hjálparlínur, hástafir, lágstafir, málsgrein, spurning, skátenging og lárétt tenging. Bls. 58 Humlan Blær minnir nemendur á að nota hjálparlínur. Verkefni Nemendur skrifa spurningu og málsgrein eftir forskrift. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina áður en þeir æfa sig að skrifa. Þraut Nemendur eiga að finna tvo eins krókódíla og draga hringi utan um þá. Krókódílarnir sem eru eins eru þeir sem eru neðst til hægri og efst til vinstri. Báðir hafa þeir kamb á baki og fugl í kjaftinum. Bls. 59 Innlögn Í verkefni nemenda eiga þeir að skrifa gátu eða brandara. Mælt er með að kennari sé með nokkrar stuttar gátur og brandara á takteinum og jafnvel á útprentuðum blöðum eða í skjali sem hægt er að deila með nemendum ef þeir hafa aðgang að tölvu eða spjaldtölvu. Gera má ráð fyrir að einhverjum þyki erfitt að finna brandara, kunni jafnvel engan eða muni ekki eftir neinum. Þá er mikilvægt að kennari sé tilbúinn með bjargir til að aðstoða nemendur. Í öllum samþættum verkefnum er mikilvægt að kennari leggi áherslu á að nemendur vandi skrift og nýti sér þær reglur sem þeir hafa þegar lært um stafdrætti og tengingar. Þá er einnig mikilvægt að kennari noti markvisst orðaforða skriftarinnar í gegnum alla kennslu og leiðsögn við nemendur. Verkefni Nemendur skrifa gátu eða brandara frá eigin brjósti eða eftir fyrirmynd sem kennari leggur til. Sjálfsmat Nemendur eiga að draga strik undir fallegustu orðin í verkefninu að framan. Síðan telja þeir hvað þeir merktu við mörg falleg orð og skrá niðurstöður sínar. Bls. 60 Humlan Blær minnir nemendur á að tengja rétt. Verkefni Nemendur eiga að skrifa orð eftir forskrift. Þraut Nemendur eiga að spora ofan í leiðirnar sem skutlurnar flugu. Bls. 61 Verkefni Nemendur skrifa málsgreinar eftir forskrift. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina áður en þeir æfa sig að skrifa. Meistaralína Sjá inngangskafla. Bls. 62 Innlögn Kennari fer yfir eða rifjar upp helstu atriði varðandi sögugerð og að allar sögur hafi upphaf, miðju og endi. Í upphafi sögu er sögupersónan kynnt til sögunnar og sögusviði jafnvel lýst. Miðjan í flestum sögum inniheldur einhvers konar vandamál sem þarf að leysa og þar er sagt frá hvernig vandamálið var leyst. Í endinum er sagt stuttlega frá hvað gerðist eftir að vandamálið leystist. Gott er að taka dæmi um sögur sem nemendur þekkja og þá helst sögur sem kennari hefur lesið nýlega fyrir nemendur og er auðvelt að rifja upp og ræða um. Kennari minnir nemendur á að nota allar þær reglur sem þeir kunna í skrift og stafsetningu þegar þeir skrifa sögurnar sínar. Fyrir suma nemendur getur verið gott að hafa mynd til hliðsjónar en það getur komið hugmyndafluginu af stað. Fyrir nemendur sem eiga erfitt með að virkja ímyndunaraflið getur líka verið gott að nota söguteninga til að fá hugmyndir að efnivið í söguna. Verkefni Nemendur skrifa sögu frá eigin brjósti. Bls. 64: Til kennara Á þessari síðu eru upplýsingar til kennara um helstu áherslur í nemendabók ásamt upplýsingum um sjálfsmat og meistaralínu sem mikilvægt er að kynna vel fyrir nemendum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=