Skrift 2a og 2b - kennsluleiðbeiningar

47 46 Bls. 37 Verkefni Nemendur skrifa orð sem ýmist innihalda hv- eða y. Sjálfsmat Í verkefninu að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá Blæ á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur eiga að merkja við það orð sem lýsir því best hvernig þeim gekk að ná markmiðinu. Bls. 38 Innlögn Kennari rifjar upp með nemendum hvernig á að draga til spurningarmerkis og sýnir það á töflu. Gott er að nota hugtök skriftarinnar við innlögnina, t.d. belgur, leggur, punktur, yfirlína, miðlína og grunnlína. Humlan Blær minnir nemendur á að hafa hæfilegt bil á milli orða. Verkefni Nemendur eiga að skrifa spurningu eftir forskrift. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina áður en þeir æfa sig að skrifa orðin. Þraut Þraut með talnamynd af skjaldböku. Nemendur eiga að draga línu á milli tölustafa. Kennari og nemendur ákveða í sameiningu hvort myndin verði lituð. Bls. 39 Innlögn Kennari ræðir við nemendur hvernig við svörum spurningum í málsgreinum í stað þess að svara með stökum orðum. Gott er að taka dæmi um spurningar og svör: • Hver eru áhugamál þín? Ég hef áhuga á fótbolta. • Æfir þú íþróttir? Já, ég æfi fimleika. • Hvað áttu mörg systkini? Ég á tvö systkini. Þá þarf að fara yfir með nemendum til hvers er ætlast í næsta verkefni og benda þeim á að öll svör eigi að byrja á orðinu ég. Verkefni Nemendur eiga að lesa spurningar og svara þeim frá eigin brjósti. Meistaralína Sjá inngangskafla. Bls. 40 Humlan Blær minnir nemendur á að skrifa spurningarmerki rétt. Verkefni Nemendur eiga að skrifa spurningar eftir forskrift. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina áður en þeir æfa sig að skrifa. Bls. 41 Verkefni Nemendur eiga að skrifa algeng orð með y og ý eftir forskrift. Sjálfsmat Nemendur eiga að draga strik undir fallegustu orðin í verkefninu að framan. Síðan telja þeir hvað þeir merktu við mörg falleg orð og skrá niðurstöður sínar. Bls. 42 Hér er ekki talið nauðsynlegt að vera með innlögn. Hins vegar er mikilvægt að kennari gangi um stofuna og fylgist með hversu vel nemendum hefur tekist að tileinka sér það sem unnið hefur verið með. Humlan Blær minnir nemendur á hjálparlínurnar. Verkefni Nemendur eiga að skrifa spurningu eftir forskrift. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina áður en þeir æfa sig að skrifa. Þraut Krossgáta með myndum. Nemendur eiga að skrifa viðeigandi orð við myndir. Þegar þeir hafa leyst krossgátuna eiga þeir að geta lesið lausnarorðið lóðrétt og skrifa það á línuna fyrir neðan. Myndir í krossgátu: skip, gormur, stóll, kanína, lauf, eyra. Lausnarorð: krókur. Bls. 43 Innlögn Kennari útskýrir fyrir nemendum að í næsta verkefni eigi þeir að semja spurningar. Nemendur þurfa að velta fyrir sér hvað þeir vilja vita um ofurhetjur. Þeir geta spurt almennra spurninga sem eiga við um allar ofurhetjur eins og: Hvað borða ofurhetjur? Hvenær sofa ofurhetjur? Nemendur geta líka spurt út í einstaka ofurhetjur eins og: Úr hverju er vefur köngulóarmannsins? Hvað þýðir Superman á íslensku? Kennari minnir nemendur á að nota stóran staf í upphafi spurningar og spurningarmerki í lokin. Verkefni Nemendur velja sér ofurhetju og semja spurningar frá eigin brjósti sem hægt er að nota til að fræðast meira um ofurhetjuna. Meistaralína Sjá inngangskafla.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=