Skrift 2a og 2b - kennsluleiðbeiningar

45 44 Bls. 31 Innlögn Kennari ræðir við nemendur um hvað maður geti sagt fallegt um vini sína og fjölskyldu. Það getur verið gott að skrifa nokkur dæmi á töflu sem er þá jafnframt stuðningur fyrir þá sem eiga erfiðara með að skrifa frá eigin brjósti. Humlan Blær minnir nemendur á að byrja á stórum staf og enda á punkti. Gott aukaverkefni hér er að láta nemendur skoða ljósritaðan texta eða texta í vinnubókum í öðrum námsgreinum og merkja við hvar í textanum reglan um stóran staf og punkta er notuð. Þetta er t.d. hægt að gera með því að nota áherslupenna og strika yfir hástafi í upphafi málsgreina og punkta í lok málsgreina. Verkefni Nemendur skrifa eitthvað fallegt um vini eða fjölskyldu. Meistaralína Sjá inngangskafla. Bls. 32–35: Tengd skrift æfð óháð stafafjölskyldum Hugtök: stafsetningareglur, undirleggur, hjálparlínur, bil á milli orða, hástafur, lágstafur, skátenging, lárétt tenging. Bls. 32 Innlögn Kennari rifjar upp með nemendum að y og ý hafa sömu hljóð og i og í. Þá er gott að ræða að nemendur munu síðar læra stafsetningarreglur um hvenær á að nota y og ý. Þrátt fyrir að nemendur læri þessar reglur ekki núna er mikilvægt að byrja að æfa algeng orð með y og ý sem fyrst þannig að orðin festist betur í minni og nemendur læri að þekkja rithátt algengra orða sjónrænt. Hér er gott að rifja upp að það er aldrei tengt úr undirlegg. Kennari þarf einnig að leggja inn hvað telst hæfilegt bil á milli orða. Það hefur hjálpað sumum nemendum að miða við breidd litla fingurs. Þá er litli fingur lagður fyrir aftan síðasta orð sem var skrifað til að sjá hvar heppilegt er að byrja á næsta orði. Einnig er hægt að nota ýmsa hluti til að áætla bilið eins og grannan blýant eða trélit, grannan pinna eins og kaffihrærur eða bréfaklemmur til að áætla bilið. Humlan Blær minnir nemendur á að hafa hæfilegt bil á milli orða. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið. Verkefni Nemendur skrifa algeng orð eftir forskrift. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina áður en þeir æfa sig að skrifa orðin. Bls. 33 Verkefni Nemendur skrifa málsgreinar eftir forskrift. Sjálfsmat Í verkefninu að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá humlunni á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur merkja við þá málsgrein sem lýsir því best hvernig þeim gekk að ná markmiðinu. Bls. 34 Humlan Blær minnir nemendur á að tengja rétt. Verkefni Nemendur skrifa algeng orð eftir forskrift. Þraut Nemendur eiga að finna algeng orð í orðasúpunni. Öll orðin eru ýmist með y eða ý. Orð sem eru í felum í orðasúpunni: fyrir, ykkur, dýr, sýnir, þýðir, reyna. Hér er tilvalið að ræða merkingu orðanna við nemendur og gefa þeim dæmi um hvernig þau eru notuð í töluðu og rituðu máli. Bls. 35 Verkefni Nemendur skrifa málsgreinar eftir forskrift. Hér er um að gera er að minna nemendur á regluna um stóran staf/hástaf og punkt. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina áður en þeir æfa sig að skrifa málsgreinarnar. Meistaralína Sjá inngangskafla. Bls. 36–43: Tengd skrift æfð óháð stafafjölskyldum. Hugtök: spurningar, spurningarmerki, spurnarorð, undirleggur, broddur, hjálparlínur, yfirlína, miðlína, grunnlína, undirlína, skátenging og lárétt tenging. Bls. 36 Innlögn Á næstu síðum er unnið með atriði sem lögð voru inn og unnið með á síðunum hér að framan. Um er að ræða spurningar, spurningarmerki, spurnarorð og orð með y og ý. Gott er að rifja upp með nemendum að spurnarorð byrja á hv- þó það hljómi eins og kv- í framburði. Þá er einnig gott að rifja upp hvernig dregið er til spurningarmerkis og sýna það á töflu ásamt því að rifja upp regluna um að aldrei sé tengt úr undirlegg. Hér er einnig tækifæri til að segja nemendum að þegar þeir tengja orð sem inniheldur broddstaf eða staf með depli þá má klára að tengja orðið áður en deplar og broddar eru gerðir. Humlan Blær minnir nemendur á að hafa hæfilegt bil á milli orða. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið. Verkefni Nemendur skrifa spurningar eftir forskrift. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina áður en þeir æfa sig að skrifa.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=