Skrift 2a og 2b - kennsluleiðbeiningar

43 42 Bls. 24–27: Hv-orð æfð Hugtök: spurningarmerki, yfirlína, miðlína, grunnlína, bogi, leggur, punktur, spurnarorð, hjálparlínur, spurningar, skátenging, lárétt tenging. Bls. 24 Innlögn Spurningarmerki er sýnt í stafahúsi í nemendaefninu og því um að gera að sýna nemendum á töflu hvernig á að draga til spurningarmerkis í stafahúsi og á línu. Byrjað er rétt undir yfirlínu og boginn dreginn upp að línunni. Leggja skal áherslu á að leggur spurningarmerkisins nái ekki niður á grunnlínu því bil þarf að vera á milli leggjarins og punktsins fyrir neðan hann. Punkturinn á að sitja á grunnlínu. Kenna þarf nemendum að spurningarmerki eru notuð í lok spurninga. Oft eru svokölluð spurnarorð notuð í upphafi spurninga. Spurnarorðin eiga það sameiginlegt að byrja öll á hv- sem hljómar eins og kv- í framburði. Þetta þarf að útskýra vel fyrir nemendum. Humlan Blær minnir nemendur á að byrja efst. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið. Verkefni Í fyrra verkefninu á síðunni eiga nemendur að spora í og skrifa spurningarmerki. Í seinna verkefninu eiga þeir að æfa sig að skrifa spurnarorð eftir forskrift. Gott er að láta nemendur lesa spurnarorðin nokkrum sinnum yfir. Með því móti næst tenging á milli þess sem nemendur sjá, segja og skrifa. Það, ásamt endurtekningunni, eykur líkur á að festa hv- ritháttinn í minni. Bls. 25 Verkefni Nemendur eiga að skrifa spurningar eftir forskrift. Gott er að láta nemendur spora ofan í forskriftina. Sjálfsmat Í verkefninu að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá humlunni á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur merkja við þá málsgrein sem lýsir því best hvernig þeim gekk að ná markmiðinu. Bls. 26 Humlan Blær minnir nemendur á hjálparlínurnar. Verkefni Í fyrra verkefninu eiga nemendur að skrifa fleiri spurnarorð eftir forskrift. Eins og áður er gott að láta nemendur lesa spurnarorðin nokkrum sinnum yfir. Í seinna verkefninu eiga nemendur að skrifa spurningu eftir forskrift eftir að þeir hafa sporað ofan í hana. Bls. 27 Innlögn Nemendur setja sig í spor fréttamanns sem ætlar að taka viðtal við nemendur í skólanum. Gott er að ræða hvers konar orð getur verið gott að nota í upphafi spurninga. Kennari getur bent nemendum á að gott getur verið að skoða spurnarorðin sem þeir æfðu sig að skrifa á síðunum á undan og ekki er verra að skrifa þau á töfluna þannig að nemendur þurfi ekki að fletta fram og til baka í bókunum sínum. Spurnarorðin geta gefið nemendum hugmyndir um hvernig þeir geta orðað spurningarnar sínar. Verkefni Nemendur skrifa fjórar spurningar án forskriftar. Meistaralína Sjá inngangskafla. Bls. 28–31: Tengingar æfðar óháð stafafjölskyldum Hugtök: málsgrein, hástafur, lágstafur, stór stafur, lítill stafur, punktur, sérnöfn, samnöfn, skátening, lárétt tenging. Bls. 28–29 Innlögn Verkefnin á næstu tveimur opnum samþætta skrift og stafsetningu. Kennari leggur inn regluna um að allar málsgreinar byrja á stórum staf og enda á punkti og að á eftir punkti er alltaf stór stafur. Í þessu samhengi er gott að rifja upp með nemendum hugtökin hástafur og lágstafur en þau eru oft notuð í staðinn fyrir hugtökin stór og lítill stafur. Humlan Blær minnir nemendur á stóran staf og punkt. Verkefni Nemendur skrifa málsgreinar eftir forskrift eftir að hafa sporað ofan í forskriftina. Sjálfsmat Í verkefninu að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá humlunni á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur eiga að draga strik undir fallegustu orðin í verkefninu að framan. Síðan telja þeir hvað þeir merktu við mörg falleg orð og skrá niðurstöður sínar. Bls. 30 Innlögn Kennari leggur inn regluna um að það sé aldrei tengt úr hástöfum. Gott er að nýta tækifærið og ræða um sérnöfn og samnöfn og að þessi regla eigi við þegar við skrifum til dæmis nöfn á fólki. Humlan Blær minnir nemendur á að tengja rétt. Verkefni Í fyrra verkefninu á þessari síðu eiga nemendur að skrifa nöfn eftir forskrift. Í seinna verkefninu eiga þeir að skrifa nöfn á fólki sem þeir þekkja og þá er gott að minna nemendur aftur á regluna um að aldrei sé tengt úr hástöfum. Þraut Nemendur eiga að finna leið fyrir bílinn að bílastæði. Gott er að hvetja nemendur til að forðast að snerta veggi völundarhússins.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=