Skrift 2a og 2b - kennsluleiðbeiningar

41 40 Þraut Krossgáta með myndum. Nemendur eiga að skrifa viðeigandi orð við myndir. Þegar þeir hafa leyst krossgátuna eiga þeir að geta lesið lausnarorðið lóðrétt og skrifa það á línuna fyrir neðan. Myndir í krossgátu: vasi, epli, ugla, ormur, öngull og álfur. Lausnarorð: segull Bls. 17 Verkefni Í fyrra verkefninu á þessari síðu skrifa nemendur orð eftir forskrift. Í seinna verkefninu er lögð áhersla á að tengja úr og í valda bókstafi. Sjálfsmat Nemendur meta vinnu sína með því að krossa í viðeigandi reit. Nemendur meta hvort þeir tengja rétt úr t og f og hvort þeir viti að það á ekki að tengja úr g og ý. Bls. 18 Humlan Blær minnir nemendur á hjálparlínurnar. Verkefni Nemendur skrifa orð eftir forskrift. Orðin sem nemendur skrifa ríma og er vel hægt að nýta tækifærið og æfa rím eða jafnvel tengja við ljóðagerð og kenna nemendum hvernig hægt sé að nota rím í ljóðum. Þegar unnið er með rím er gaman að skoða með nemendum hvað það er sem breytist í orðunum. Þegar nemendur átta sig á að það er aðeins fyrsta hljóðið sem breytist mun það án efa auðvelda þeim sköpun í ljóðagerð. Þraut Felumynd af ketti. Nemendur eiga að lita hvern bókstaf eftir leiðbeiningum. Bls. 19 Verkefni Í þessu verkefni er lögð áhersla á að æfa tengingar úr og í valda bókstafi. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina. Meistaralína Sjá inngangskafla. Bls. 20–23: Tenging bókstafa í o- og b-stafafjölskyldum Hugtök: undirleggur, yfirleggur, yfirlína, miðlína, grunnlína, undirlína, hjálparlínur, tvídepill, broddur, krókur, belgur, skátenging og lárétt tenging. Bls. 20 Innlögn Á þessari og næstu opnu eru stafir úr tveimur stafafjölskyldum notaðir saman til að æfa tengingar á milli bókstafa og til að festa reglur enn frekar í minni. Gott er að minna nemendur sérstaklega á að muna eftir reglunni um að aldrei er tengt úr undirlegg. Verkefni Nemendur skrifa orð eftir forskrift. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina. Þraut Nemendur eiga að spora leið á milli mynda af trélitum og grænmetis. Bls. 21 Verkefni Í fyrra verkefninu á þessari síðu skrifa nemendur orð eftir forskrift. Í seinna verkefninu er lögð áhersla á að tengja úr og í valda bókstafi. Sjálfsmat Nemendur meta vinnu sína með því að svara spurningum í gátlista. Nemendur meta hvort þeir tengja rétt úr é og æ og hvort þeir viti að það á ekki að tengja úr bókstöfunum r og ð. Bls. 22 Humlan Blær minnir nemendur á að setja tvídepil á réttan stað. Verkefni Nemendur skrifa orð eftir forskrift. Orðin sem nemendur skrifa ríma og er vel hægt að nýta tækifærið og æfa rím eða jafnvel að tengja við ljóðagerð og kenna nemendum hvernig hægt er að nota rím í ljóðum. Þraut Nemendur eiga að finna sex atriði sem eru ekki eins á myndunum tveimur. Það sem er öðruvísi á myndinni til hægri: strákurinn án gleraugna, gul rönd á ærslabelg lengst til vinstri (ekki græn), annar litur á stuttermabol barnsins sem er lengst til vinstri, sokkar á barni lengst til hægri eru í öðrum lit, vantar hluta af hári á barnið í miðjunni, vantar lokkana ofan á hári svarthærða barnsins. Bls. 23 Verkefni Nemendur æfa tengingar einstakra bókstafa. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina. Meistaralína Sjá inngangskafla.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=