Skrift 2a og 2b - kennsluleiðbeiningar

39 38 Verkefni Nemendur æfa sig að tengja alla bókstafi o-fjölskyldunnar. Þjálfunaræfing Sporunaræfingar eru til þess fallnar að æfa skriftarhreyfinguna og eina af tengingunum innan o-fjölskyldunnar sem er að tengja með þverstriki úr efri hluta belgs yfir í næsta bókstaf. Bls. 13 Verkefni Nemendur halda áfram að æfa tengingar í o-fjölskyldunni með því að skrifa merkingarbær orð. Sjálfsmat Í verkefninu að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá humlunni á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur eiga að merkja við það orð sem lýsir því best hvernig þeim gekk að ná markmiðinu. Nemendur þurfa að muna margar reglur í tengslum við tengingar í o-fjölskyldunni auk þess sem tenging úr e, é og æ getur reynst nemendum erfitt. Því er mikilvægt að kennarar fylgist vel með hvort einhverjir nemendur þurfa ef til vill á aukaæfingu að halda til að festa reglur og tengingar betur í minni. Á Skriftarsmiðjunni má finna slíkar æfingar fyrir hvern og einn bókstaf og stafafjölskyldur. Auk þess geta kennarar útbúið einstaklingsmiðuð verkefni. Bls. 14–15: Upprifjun á tengingum í x-fjölskyldunni Hugtök: miðlína, grunnlína, skástrik, leggur, tengikrókur, skátenging, lárétt tenging. Bls. 14 Innlögn Stafdrættir eru rifjaðir upp ásamt tengingum í x-fjölskyldunni. Tengt er eins úr bókstöfunum v og w en þar er tengt úr hægri legg, notuð er skátenging þegar tengt er í leggstafi en lárétt tenging þegar tengt er í bókstafi sem byrja við miðlínu. Þegar dregið er til bókstafsins x er byrjað efst vinstra megin og leggur dreginn skáhalt niður til hægri og gerður tengikrókur. Þegar tengt er úr x í aðra bókstafi er krókabrella notuð en þá er haldið áfram með tengikrókinn upp í miðlínu en þegar því er lokið þarf að lyfta blýanti til að draga hinn legginn á x-inu sem hefst hægra megin og er dregin niður til vinstri. Eins og fram kemur í kennsluleiðbeiningum með bók 2a geta kennarar líka kennt nemendum að hafa tengikrók eins og venjulega og hefja tenginu í næsta bókstaf frá tengikrók þegar búið er að ljúka við að skrifa x. Þá þarf að lyfta blýanti aftur og staðsetja hann í tengikrók þaðan sem tenging er gerð í næsta bókstaf. Rifjið upp stafdrætti og tengingar á töflu. Hér er tilvalið að teikna nokkra rétthyrninga á töfluna og sýna nemendum hvernig allir bókstafir x -fjölskyldunnar rúmast innan rétthyrninganna. Einnig er hægt að nota mismunandi liti fyrir hvern bókstaf, skrifa bókstafina hvern ofan í annan og rifja þannig upp hvernig þeir passa hver ofan á annan. Humlan Blær minnir nemendur á að muna eftir miðlínu og grunnlínu. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið. Verkefni Nemendur æfa tengingar í x-fjölskyldunni. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina. Þraut Þraut með talnamynd af humlu. Nemendur eiga að draga línu á milli tölustafa. Kennari og nemendur ákveða í sameiningu hvort myndin verði lituð. Bls. 15 Innlögn Það er mikilvægt að þjálfa einnig skrift erlendu bókstafanna w, c, q og z. Nemendur munu í námi sínu þurfa að nota þessa bókstafi þegar þeir læra ensku og því mikilvægt að æfa þá líka í skrift. Í næsta verkefni æfa nemendur sig að skrifa ensk orð. Líkt og hjá b-fjölskyldunni eru aðeins samhljóðar í x-fjölskyldunni og því ekki hægt að búa til merkingarbær orð án þess að fá aðstoð frá öðrum stafafjölskyldum. Kennarar eru hvattir til að nýta hvert tækifæri sem gefst til að ræða muninn á sérhljóðum og samhljóðum og rifja upp aðferðir sem hafa verið kenndar til að greina þarna á milli. Verkefni Nemendur halda áfram að æfa tengingar í x-fjölskyldunni með því að skrifa merkingarbær orð. Sjálfsmat Í verkefninu að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá humlunni á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur merkja við þá málsgrein sem lýsir því best hvernig þeim gekk að ná markmiðinu. Nemendur þurfa að muna margar reglur í tengslum við tengingar í x-fjölskyldunni og því er mikilvægt að kennarar fylgist vel með hvort einhverjir nemendur þurfa ef til vill á aukaæfingu að halda til að festa reglur og tengingar betur í minni. Hugmyndir að aukaæfingum má t.d. nálgast á Skriftarsmiðjunni. Bls. 16–19: Tenging bókstafa í a-, l- og x-stafafjölskyldum Hugtök: undirleggur, yfirleggur, yfirlína, miðlína, grunnlína, undirlína, hjálparlínur, depill, broddur, krókur, skátenging, lárétt tenging. Bls. 16 Innlögn Á þessari og næstu opnu eru stafir úr þremur stafafjölskyldum notaðir saman til að æfa tengingar á milli bókstafa og til að festa reglur enn frekar í minni. Gott er að minna nemendur sérstaklega á að muna eftir reglunni um að aldrei er tengt úr undirlegg. Humlan Blær minnir nemendur á að tengja rétt. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið. Verkefni Nemendur skrifa einföld orð eftir forskrift. Gott er að leggja áherslu á að nemendur spori ofan í forskriftina.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=