Skrift 2a og 2b - kennsluleiðbeiningar

37 36 Bls. 9 Innlögn Gott er að benda nemendum á að í b-fjölskyldunni eru bara samhljóðar og að það sé ekki hægt að búa til orð án þess að nota sérhljóða með samhljóðunum. Þess vegna bætast bókstafir úr öðrum stafafjölskyldum við í þessari æfingu svo hægt sé að búa til merkingarbær orð. Hér má gjarnan rifja upp leiðir í innlögn á sérhljóðum og samhljóðum sem voru lagðir til í kennsluleiðbeiningum með bók 2a, sjá bls. 14 og 19: • Þegar rætt er um sérhljóða er hægt að kynna broddstafina sem tvíburabræður bókstafanna sem eru eins og broddstafirnir að útliti fyrir utan broddinn sem aðgreinir þá. Dæmi um tvíbura: a og á, e og é, i og í, u og ú. Svo má ekki gleyma einu þríburunum í stafrófinu: o ó og ö. Síðan eru sérhljóðarnir a og e náfrændur en þegar þeir hittast þá búa þeir saman til æ. Þannig er hægt að halda áfram yfir í tvíhljóðin sem eru búin til úr bestu vinum, til dæmis eru a og u bestu vinir og þegar þau hittast búa þau saman til au. Bókstafurinn e á tvo bestu vini, i og y, og með þeim býr hann til tvíhljóðin ei og ey. • Þegar rætt er um samhljóða er hægt að kenna nemendum að samhljóðar eru ekki nógu sterkir til að segja nafnið sitt sjálfir og þess vegna fá þeir sérhljóðana til að hjálpa sér, dæmi: bé, gé, ká, ell o.s.frv. Sérhljóðarnir eru hins vegar mjög sterkir og þess vegna geta þeir sagt nafnið sitt alveg sjálfir. Verkefni Nemendur halda áfram að æfa reglurnar sem þegar hafa verið rifjaðar upp og æfa alla bókstafi b-fjölskyldunnar ásamt bókstafnum a. Sjálfsmat Í verkefninu að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá humlunni á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur eiga að merkja við þá málsgrein sem lýsir því best hvernig þeim gekk að ná markmiðinu. Bls. 10–11: Upprifjun á tengingum í l-fjölskyldunni Hugtök: yfirlína, miðlína, grunnlína, undirlína, leggur, yfirleggur, undirleggur, tengikrókur, bogi, þverstrik, depill, broddur, skátenging, lárétt tenging úr þverstriki. Bls. 10 Innlögn Stafdrættir eru rifjaðir upp ásamt tengingum í l-fjölskyldunni. Algengasta tengingin er skátenging frá tengikrók í næsta bókstaf eins og tengt er úr l, i, og í. Hér þarf að rifja upp regluna um að ekki er tengt úr undirlegg og á sú regla við um bókstafinn j. Rifja þarf upp nokkrar reglur varðandi tengingar í og úr bókstöfunum f og t. • Krókabrellu má nota til að tengja í f. • Tengt er úr bókstöfunum f og t með láréttri tengingu úr þverstriki • Þegar tengt er úr þverstriki er ekki tengt í bókstafi sem eru með háan yfirlegg vinstra megin, eins og l, h, b, k og þ. • Þegar tvö f og tvö t eru tengd saman má draga eitt langt þverstrik í gegnum báða bókstafina í einu. Eins og áður er mikilvægt að rifja upp stafdrætti og tengingar á töflu og er mælt með að gera það á fjölbreyttan og lifandi hátt, t.d. með því að nota mismunandi liti fyrir hvern bókstaf eða skrifa bókstafina hvern ofan í annan. Humlan Blær minnir nemendur á að tengja rétt. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið. Verkefni Nemendur æfa reglurnar sem rifjaðar hafa verið upp og æfa sig að skrifa og tengja alla bókstafi l-fjölskyldunnar eins og við á. Bls. 11 Verkefni Nemendur halda áfram að æfa tengingar í l-fjölskyldunni með því að skrifa merkingarbærar málsgreinar. Sjálfsmat Í verkefninu að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá humlunni á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur draga strik undir fallegar tengingar í verkefninu að framan. Síðan telja þeir hvað þeir merktu við margar fallegar tengingar og skrá niðurstöður sínar. Nemendur þurfa að muna margar reglur í tengslum við tengingar í l-fjölskyldunni og því er mikilvægt að kennarar fylgist vel með hvort einhverjir nemendur þurfa ef til vill á aukaæfingu að halda til að festa reglur og tengingar betur í minni. Á Skriftarsmiðjunni má finna ýmiss konar æfingar sem hægt er að nota en auk þess geta kennarar útbúið einstaklingsmiðuð verkefni. Bls. 12–13: Upprifjun á tengingum í o-fjölskyldunni Hugtök: yfirlína, miðlína, grunnlína, depill, broddur, belgur, bogi, þverstrik, lárétt tenging, skátenging. Bls. 12 Innlögn Stafdrættir eru rifjaðir upp ásamt tengingum í o-fjölskyldunni. Þrír bókstafir tengjast ýmist með skátengingu eða láréttri tengingu úr efri hluta belgs en það eru o, ó og ö. Notuð er skátenging þegar tengt er í leggstafi en lárétt tenging þegar tengt er í bókstafi sem byrja við miðlínu. Tengingar frá e, é og æ eru gerðar með skátengingu frá neðri hluta litla belgsins á e-inu. Rifja þarf upp regluna um að broddar og deplar eru gerðir eftir að búið er að skrifa tiltekið orð. Tenging úr s er gerð úr neðri boga og þarf að leggja áherslu á að nemendur vandi sig við að draga línuna aftur til baka eftir neðri boganum þannig að tengingin verði snyrtileg. Að lokum þarf að minna nemendur á að ekki er tengt úr bókstafnum ð. Mikilvægt er að rifja upp stafdrætti og tengingar á töflu og er mælt með að gera það á fjölbreyttan og lifandi hátt, t.d. með því að nota mismunandi liti fyrir hvern bókstaf, skrifa bókstafina hvern ofan í annan og rifja þannig upp hvernig þeir passa hver ofan á annan. Hægt er að skrifa nokkur o á töfluna og skoða hvernig allir hinir bókstafir o-fjölskyldunnar passa inn í o-ið. Humlan Blær minnir nemendur á að tengja rétt. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=