34 35 Bls. 4–5: Upprifjun Innlögn Gott er að minna nemendur á hvernig tengt er á milli f og t en þá er tengt lárétt úr þverstriki á bókstafnum f í bókstafinn t. Þegar tvö f eða tvö t standa saman má tengja þá saman með því að gera eitt langt þverstrik í gegnum báða stafina í einu. Hér er líka gott tækifæri til að nota krókabrelluna sem er aðallega notuð þegar tengt er í bókstafinn f og úr bókstafnum x. Humlan Blær minnir nemendur á að það er aldrei tengt úr hástaf. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið. Verkefni Hér eru upprifjunaræfingar þar sem nemendur fá tækifæri til að skrifa og æfa tengingar allra stafafjölskyldna í merkingarbærum málsgreinum þar sem flestir stafir íslenska stafrófsins eru teknir fyrir auk bókstafanna c, w og q. Sjálfsmat Í verkefninu hér að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá humlunni á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur merkja við það orð sem lýsir því best hvernig þeim gekk að ná markmiðinu. Bls. 6–7: Upprifjun á tengingum í a-fjölskyldunni Hugtök: yfirlína, miðlína, grunnlína, undirlína, leggur, yfirleggur, undirleggur, belgur, tengikrókur, broddur, skátenging. Á næstu síðum er upprifjun á tengingum innan hverrar stafafjölskyldu. Þar gefst gott tækifæri til að rifja upp tengingar í og úr hverjum og einum bókstaf. Bls. 6 Innlögn Gott er að rifja upp stafdrætti bókstafanna og hvernig tengikrókurinn er notaður til að halda áfram í næsta bókstaf. Hér er tilvalið að rifja upp hvernig bókstafirnir innan a-fjölskyldunnar passa hver inn í annan, t.d. með því að nota mismunandi liti og skrifa bókstafina hvern ofan í annan á töflu eða flettitöflu eða að nota stóra útklippta bókstafi og leggja þá hvern yfir annan. Einnig þarf að rifja upp regluna um að ekki er tengt úr undirlegg, þessi regla gildir um bókstafina g, y og ý í a-fjölskyldunni. Rifjið einnig upp regluna um að þegar brodd- og deplastafir eru skrifaðir með tengdri skrift á að byrja á að ljúka orðinu sem verið er að skrifa og síðan er broddum og deplum bætt við eftir á. Humlan Blær minnir nemendur á að tengja rétt. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið. Verkefni Nemendur eiga að æfa sig endurtekið að skrifa og tengja bókstafina g, a, d og u. Seinna verkefnið á síðunni hefur það að markmiði að æfa regluna um að ekki er tengt úr undirlegg ásamt því að æfa hvernig broddur er skrifaður eftir að tengingu er lokið. Í þessu verkefni er lögð áhersla á að æfa bókstafina y, q, g, d, u, á og ú. Bls. 7 Þjálfunaræfing Sporunaræfingar eru til þess fallnar að æfa skriftarhreyfinguna og algengustu tenginguna innan a-fjölskyldunnar sem er skátenging úr tengikrók yfir í næsta bókstaf. Verkefni Nemendur halda áfram að æfa reglur um tengingar bókstafa sem þegar hafa verið rifjaðar upp og æfa bókstafina a, á, d, g og y. Sjálfsmat Í verkefninu að framan eiga nemendur að hafa áminninguna frá humlunni á fyrri síðu í huga þegar þeir meta frammistöðu sína í lok verkefnis. Nemendur eiga að draga strik undir fallegar tengingar í verkefninu að framan. Síðan telja þeir hvað þeir merktu við margar fallegar tengingar og skrá niðurstöður sínar. Bls. 8–9: Upprifjun á tengingum í b-fjölskyldunni Hugtök: yfirlína, miðlína, grunnlína, undirlína, leggur, yfirleggur, belgur, bogi, tengikrókur, skátenging. Bls. 8 Innlögn Gott er að rifja upp stafdrætti bókstafanna og tengingar í b-fjölskyldunni. Rifja þarf upp hvernig tengt er úr belg bókstafanna b, p og þ, hvernig tengikrókur er notaður til að tengja úr h, n, m og k. Báðar þessar tengingar kallast skátenging. Að lokum þarf að muna að ekki er tengt úr bókstafnum r. Hér er tilvalið að rifja upp hvernig bókstafirnir innan b-fjölskyldunnar passa hver inn í annan, t.d. með því að nota mismunandi liti og skrifa bókstafina hvern ofan í annan á töflu eða flettitöflu eða að nota stóra útklippta bókstafi og leggja þá hvern yfir annan. Humlan blær minnir nemendur á hjálparlínurnar. Þegar kemur að sjálfsmatinu á næstu síðu er gott að segja nemendum að hafa þessa áminningu í huga við matið. Verkefni Nemendur æfa sig að tengja á milli bókstafa sem eru tengdir með tengikrók og bókstafa sem tengjast úr belg. Tengingar allra bókstafa í b-fjölskyldu eru æfðar í þessu verkefni. Þjálfunaræfing Krákustígar eru til þess fallnir að æfa skriftarhreyfinguna og algengustu tenginguna innan b-fjölskyldunnar sem er að tengja úr tengikrók yfir í næsta bókstaf.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=