Sköpun - Ritröð um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 5 Stjórnendur skóla þurfa einnig að horfa inn á við og íhuga eigið starf og stjórnunarhætti með hliðsjón af hugmyndum um grunnþættina, hlutverk náms- greina eða námssviða, samvinnu starfsmanna, möguleika nemenda, náms- og kennsluhætti, velferð og líðan, leik og sköpunargleði, skólamenningu, nærsam- félag skóla og skapandi skólastarf. Sama máli gegnir raunar um alla sem tengjast skólastarfinu. Mikilvægt er að skoða með opnum huga og gagnrýnum augum viðhorf okkar og venjur í ljósi grunnþátta menntunar. Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Námsgagnastofnun hafa haft sam- vinnu um útgáfu rita um grunnþætti menntunar. Í þessu riti er fjallað um grunn- þáttinn sköpun. Höfundar eru Ingibjörg Jóhannsdóttir skólastjóri Myndlistaskóla Reykjavíkur, Elísabet Indra Ragnarsdóttir dagskrárgerðarmaður og Torfi Hjartar- son lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ritnefnd

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=