Skilaboð móttekin

40652 skilaboð móttekin Fjölmiðlar og auglýsingar eru áhrifarík fyrirbæri sem eru fyrirferðarmikil í nútímanum og snúast fyrst og fremst um að miðla upplýsingum. En ekki er allt sem sýnist. Hvernig lítur sannleikurinn út? Er hægt að afbaka sannleikann með ólíkum búningum? Hversu mikil áhrif hafa auglýsingar á okkur og hversu frjáls erum við sem neytendur? Í Skilaboð móttekin fjallar Davíð A. Stefánsson bókmenntafræðingur um tungumál, myndmál og notkun á táknum í fjölmiðlum og auglýsingum. Þetta er óvenjuleg kennslubók í íslensku um málefni sem varðar daglegt líf allra Íslendinga – sérstaklega þeirra sem vilja lifa lífinu með augun opin. Kennsluleiðbeiningar eru á www.nams.is

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=