Skilaboð móttekin

72 Hvernig „má“ auglýsa? Tölvuleikir verða sífellt vinsælli og sérhæfðari eftir áherslum og áhuga- málum þeirra sem þá spila En eru til sérstakir strákaleikir og sérstakir stelpuleikir? Í fljótu bragði myndu flestir segja nei En ef við skoðum framan á tölvuleiki og lesum í myndmálið í tölvuleikjaauglýsingum kemur í ljós að sumir þeirra eiga frekar að höfða til stráka en stelpna – og öfugt Af hverju í ósköpunum er það? Verkefni Berðu saman þessar tvær auglýsingar: • Er myndmálið líkt eða ólíkt? • Hvað með stemmningu og litanotkun? • Hvaða lýsingarorð mynd- irðu nota til að lýsa fyrri auglýsingunni? En þeirri seinni? • Er munur á áferð auglýs- inganna (hvassar/mjúkar línur)? • Þætti þér skrýtið ef 12 ára strákur bæði um Ævintýra- prinsessugarðinn í jólagjöf? Af hverju? Af hverju ekki? • Þætti þér skrýtið ef 12 ára stelpa bæði um Stríðs- skepnur í jólagjöf? Af hverju? Af hverju ekki?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=