Skilaboð móttekin

3. hluti 63 Þriðja mest áberandi Stórt letur þar sem stendur AÐEINS Í DAG! Andardrátturinn þyngist og verður hraðari Nýjar tilfinningar flæða innra með mér, spennandi tilfinningar sem segja mér að stökkva, að bregðast við, NÚNA ! Hvað virkjast innra með mér? Ótta-/flóttaviðbragðið – ef ég bregst ekki við NÚNA Í DAG missi ég af öllu; með því að bregðast ekki við er ég að hafna þessu óviðjafnanlega, kynæsandi gróðatilboði og ég mun alltaf sjá eftir því að gera það ekki Fjórða mest áberandi Að endingu sé ég tölvunni í auglýsingunni bregða fyrir Á þessum tímapunkti veit ég ekki aaaalveg hvort mig vantar svona tölvu en af því að ég skynjaði fyrst fallegu konuna, afslátt- inn og tímarammann hefur viðhorf mitt gagnvart tölvunni mýkst – það eru miklu meiri líkur á því að ég stökkvi til og kaupi hana Auðvitað er þetta ýkt dæmi en ég er viss um að þú skilur þetta ferli. Við erum engir hálfvitar eða apakettir. Við erum bara mennsk og stútfull af tilfinningum sem er auðvelt að spila á. Þannig liggur í málunum Allt á að gerast strax, hratt, með miklum látum – NÚNA ! Það er erfitt að finna sann- leikann í þessum efnum en nútímamaðurinn virðist stundum aðeins geta hugsað um að fullnægja þörfum sínum á stundinni Kannski var þetta öðruvísi áður fyrr, kannski ekki En prófaðu að ímynda þér tölvuleik þar sem þú leggur á þig alls kyns þrautir NÚNA en færð ekki neina umbun fyrr en eftir einn dag Eða eina viku, jafnvel mánuði eða ár Við, sem erum alin upp í hraða vestrænna neyslusamfélaga, erum vanari því að allt gerist strax Kannski hefur þolinmæði okkar minnkað? Kannski er það líka þess vegna sem auglýsingar hafa svona mikil áhrif? Dagbók/verkefni Húmor er mjög sterkt meðal í auglýsingum, enda fer straumur jákvæðra boðefna um líkamann þegar við hlæjum og okkur líður vel. Með því að birta vörur eða vörumerki í samhengi við þennan straum boðefna er búin til sterk tenging sem gerir okkur jákvæð gagnvart vörunni. Hver er fyndnasta auglýsing sem þið munið eftir? Hvað gerði hana svona fyndna? Af því að stundum viljum við fá allt, hratt, mikið, strax og á lágu verði!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=