Skilaboð móttekin

60 Auglýsing er boð í dans Auglýsing er stútfull af upplýsingum sem vekja spennu og áhuga okkar og hreyfa við taugaboðum innra með okkur Augu og eyru áhorfandans eru alltaf vakandi og tilbúin að senda upplýsingar til heilans til að melta og meta Nánast sjálfkrafa fara af stað rökræður í höfði áhorfandans: • Hef ég not fyrir vöruna? • Hef ég efni á henni? • Hef ég efni á að kaupa ekki vöruna? • Þarf ég hana? • Vil ég hana? • Hvað græði ég á því að kaupa hana? • Ef ég myndi kaupa vöruna, myndi ég velja rauða eða bláa? Stóra eða litla? Mjúka eða harða? Eitt stykki eða fleiri? • Ætli vinir mínir fíli þessa vöru? • Hvað myndu mamma og pabbi segja ef ég keypti svona lagað? Og svo framvegis og svo framvegis Það er á okkar eigin ábyrgð að stjórna því hversu mikil áhrif auglýsingar hafa.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=