Skilaboð móttekin

12 Hreinn sannleikur er ekki til – nema að mjög takmörkuðu leyti og í takmörk- uðum skilningi. Frásagnir af heiminum, hvort sem þær berast okkur í gegnum auglýsingar eða fjölmiðla, eru alltaf litaðar af því hver segir söguna. Það er okkar hlutverk að taka ákvarðanir út frá innihaldinu – ekki umbúðunum. Þú getur tekið ákvörðun um að taka eftir skilaboðunum sem þér eru send á hverjum degi í gegnum fjölmiðla og auglýsingar. Þú getur tekið þessa ákvörðun – ákvörðun um að opna augun, hreinsa eyrun og hætta að bregðast hugsunar- laust við áreitinu og upplýsingunum. Taktu eftir skilaboðunum annars taka skilaboðin þig yfir. Þú ræður þessu öllu – en til þess þarftu að vera vakandi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=