Sjóræningjarnir eru komnir

97 3. Óttinn við sjóræningja heltók landsmenn eftir árásirnar 1627. Vestmannaeyingar endurreistu gamla virkið Skansinn og fengu danskan herþjálfara til að þjálfa upp herlið heimamanna. Þeir höfðu stöðugt mann á fallbyssuvakt en sem betur fer urðu ekki fleiri árásir. Hægt er að ganga að Skansinum og skoða gamla fallbyssu sem herliðið lærði að nota, hún er frá 1586. 4. Hægt er að skoða legstein séra Ólafs Egilssonar í anddyri Landakirkju í Vestmannaeyjum. Þessi Landakirkja er auðvitað ekki sú sama og Ólafur var prestur í, enda var hún brennd til grunna í Tyrkjaráninu. Eyjamenn söfnuðu fé í mörg ár til að smíða nýja kirkju. Kirkjan sem nú stendur er úr steini og var reist seint á 18. öld eftir teikningu sem frægur danskur arkitekt gerði, C.D. Anthon.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=