Sjóræningjarnir eru komnir

96 Hún var hins vegar orðin svo máttfarin að hún dó skömmu síðar. Jón var því áfram í siglingum með korsurum en tókst eftir ævintýralega hrakninga og björgun að flýja og komst til Kaupmannahafnar, þar sem hann varð mikils metinn. Jón ætlaði loks heim til Íslands en fékk sýkingu í fótinn sem dró hann til dauða. Að varðveita söguna og læra af henni 1. Atburður eins og Tyrkjaránið gleymist ekki þótt langt sé liðið síðan hann gerðist. Hryllingurinn lifði mann fram af manni í sögum, kvæðum og skrifuðum frásögnum en líka í örnefnum eins og Hundraðmannahelli og Ræningjatanga í Vestmannaeyjum. Hvað heldur þú að hafi gerst á þessum stöðum? 2. Við þurfum að þekkja söguna og geta rætt um hana en um leið þurfum við að passa okkur að draga hana ekki inn í nútímann. Tökum eitt dæmi: Einu sinni voru Íslendingar að keppa við Tyrki í fótbolta og þá var sagt í útvarpinu: „Hefnum fyrir Tyrkjaránið.“ Hugsaðu um það sem þú hefur lært af því að lesa þessa bók. Hvers vegna er rangt að segja þetta?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=