95 5. Sumt af fólkinu kaus að aðlagast lífinu í Barbaríinu frekar en að stefna heim aftur. Ein þeirra var Anna Jasparsdóttir, sem var frá bænum Stakkagerði í Vestmannaeyjum eins og Gudda. Hún gerðist múslimi, giftist ríkum manni í Algeirsborg og lifði í vellystingum. Íslendingarnir í borginni kölluðu hana drottninguna af Algeirsborg í háðungarskyni. Anna fékk eiginmann sinn til að borga fyrir frelsi föður hennar og gefa honum farareyri til Íslands. Þegar hann var kominn heim skrifaði hann frásögn af örlögum hennar fyrir biskupinn í Skálholti. Þar hrósar hann manni Önnu og segir að hann hafi gert mikið góðverk. Hugsanlegt er að feðginin hafi sent hvort öðru bréf þó að ekkert þeirra hafi varðveist. Hvað heldur þú að Anna hafi skrifað til föður síns og hann til hennar? 6. Annað dæmi um Íslending sem hlaut frama í Barbaríinu er Jón Jónsson eða Jón Vestmann, sonur séra Jóns píslarvotts og Margrétar. Hann var unglingur þegar honum var rænt í Vestmannaeyjum ásamt móður sinni og systur, en faðir hans var myrtur, eins og fram kemur í þessari bók. Jón reyndist góður sjómaður og varð skipstjóri á korsaraskipum sem sigldu um Miðjarðarhafið. Hollendingur nokkur vildi kaupa honum frelsi en hann notaði peningana til að frelsa móður sína.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=