94 3. Hæsta lausnargjaldið var greitt fyrir Ástu konu Ólafs og konu sem hét Gunnhildur, en þær voru í haldi hjá sama manni. Ásta fékk ekki að hafa börnin sín með sér til Íslands; Systa og Jón litli urðu eftir, eins og Egill, söguhetjan okkar. Ekkert er vitað hvað varð um þau. Hvað heldur þú að hafi orðið um Systu og Jón? 4. Þekktasta nafnið úr hópi þeirra sem fengu frelsi er Guðríður Símonardóttir, eða Gudda í Stakkagerði eins og hún er kölluð í bókinni. Gudda var ein af þeim sem fóru frá Algeirsborg 1636 en hún varð að skilja Sölmund son sinn eftir. Þegar hópurinn var á leið til Íslands dvaldi hann í Kaupmannahöfn einn vetur. Þar var ungur prestnemi sem átti að hjálpa fólkinu að rifja upp íslensku og kristna trú. Hann hét Hallgrímur Pétursson og átti síðar eftir að verða þekkt sálmaskáld. Gudda og Hallgrímur áttu í ástarsambandi og hún varð ólétt, sem þótti mikið hneyksli því hún átti eiginmann á Íslandi. Þegar þau komu til Íslands kom í ljós að eiginmaðurinn hafði drukknað og því gátu Gudda og Hallgrímur gifst. Þau bjuggu við mikla fátækt fyrstu árin svo að án efa myndu þau verða mjög hissa ef þau vissu að stærsta kirkja landsins, Hallgrímskirkja í Reykjavík, er tileinkuð Hallgrími. Gudda fékk viðurnefnið TyrkjaGudda eftir komuna til Íslands. Hvað finnst þér um það viðurnefni?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=