Sjóræningjarnir eru komnir

93 HUGLEIÐINGAR OG VERKEFNI Í BÓKARLOK Hvað varð um fólkið sem var rænt? 1. Um 400 íslenskir fangar voru teknir í þeim leiðangri sem hér er sagt frá. Fáeinir dóu á leiðinni en til viðbótar létust um 30 manns á fyrstu dögunum eftir að komið var til Algeirsborgar. Fólkið þoldi ekki hitann, álagið eða pestirnar sem geisuðu þar. 2. Mánuði eftir að fangarnir komu til Algeirsborgar var séra Ólafur Egilsson sendur til Danakonungs að biðja um lausnargjald fyrir íslensku fangana. Hann komst til Kaupmannahafnar eftir margra mánaða hrakninga en þar var ástandið hrikalegt eftir stríð og engir peningar til. Söfnun hófst þó bæði í Danmörku og á Íslandi og átta árum seinna náðist að kaupa frelsi fyrir 34 Íslendinga. Sá hópur minnkaði þó því sex manns létust á heimferðinni og einn varð eftir í Þýskalandi. Árið 1637 komu loks 27 Íslendingar heim, tíu árum eftir að þeim var rænt. 1645 tókst að kaupa frelsi fyrir átta Íslendinga í viðbót.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=