89 hafi gert hann að heimilisþræl, en þeir unnu til dæmis við þrif og að sækja vatn í brunna. Ef Pasha líkaði vel við Egil er mögulegt að hann hafi gert hann að einkaþræl sem fór í sendiferðir og aðstoðaði þegar gestir komu. Vitað er að öll börnin sem urðu þrælar voru látin turnast turnast, eins og það var kallað. Það merkir að skipta um trú. Við vitum því að Egill varð múslimi og vísbendingar eru um að hann hafi flutt til Túnis með húsbónda sínum þegar hann var unglingur. Túnis var á þessum tíma hluti af Tyrkjaveldi. Í Túnisborg var fjölbreytt menningarlíf á 17. aldar mælikvarða, bókmenntir og vísindi blómstruðu. Kannski varð lærdómsfúsi unglingurinn frá Íslandi var við það? Kannski fór Egill til Túnis eftir átök í Algeirsborg. Hugsanlega hefur hann þá þurft að vera í hernaði, jafnvel á herskipi eða sjóræningjaskipi.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=