Sjóræningjarnir eru komnir

88 Orð til skoðunar: námfús að turnast handverksmenn 11. KAFLI HVAÐ VARÐ UM EGIL? Engar heimildir eru til um Egil eftir að Pasha keypti hann á þrælamarkaðinum. Það eina sem við vitum er að hann kom aldrei aftur til Íslands. Í raun kom ekkert af íslensku börnunum heim aftur. Ekki Egill, Systa, Jón litli, Sölmundur, Þorgeir eða nokkurt annað barn sem rænt var í Vestmannaeyjum, Grindavík eða á Austurlandi 1627. Af þessum börnum er Þorgeir sá eini sem er skáldaður. Hin voru öll til í raun og veru. Við getum velt því fyrir okkur hvað varð um Egil. Pasha var voldugur og ríkur og slíkir menn áttu marga þræla, sumir jafnvel mörg hundruð. Verkefni þræls á aldur við Egil ultu á styrkleikum hans; ef drengurinn var stór og sterkur var hann settur í erfiðisvinnu en ef drengurinn var lítill og grannur var hann gerður að heimilisþræl. Egill var námfús námfús og greindur samkvæmt Reisubók föður hans. Hvergi er nefnt að hann hafi verið sterkur. Það gæti bent til þess að Pasha

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=