Sjóræningjarnir eru komnir

Í Algeirsborg í Asser (Alsír) bjuggu um 100 þúsund manns, eða tvöfaldur íbúafjöldi Íslands á 17. öld. Borgin var samt lítil að umfangi, húsin voru tveggja til þriggja hæða og stóðu mjög þétt. Þetta var mikil viðskiptaborg þar sem verslað var með ávexti og fleiri landbúnaðarvörur, silkivefnað og annað handverk, en líka með manneskjur, eins og víða við Miðjarðarhafið. Um fjórðungur íbúanna var þrælar. Geturðu reiknað út hvað þrælarnir voru margir? Þrælamarkaðurinn kallaðist Badestan. Þar voru stolnir hlutir úr ránsferðunum seldir og fólk boðið upp. Ránsfengurinn var misjafn eftir því hvaðan ræningjarnir voru að koma. Eftir Íslandsferðina gætu þeir hafa selt ullarföt, vaðmál (ullarefni), lýsi, fisk og kirkjugripi. Ef þeir komu úr leiðangri til suðlægari landa, t.d. Kanaríeyja, voru þeir með allt öðruvísi varning til sölu, t.d. salt, ólívuolíu, timbur, leður, silki og vín. Ákveðnar reglur giltu um sölu þræla á markaðinum. Fyrst fékk kafteinninn á þrælaskipinu að velja tvo þræla. Síðan fékk Pasha eða borgarkóngurinn að velja einn og síðan fékk Pasha áttunda hvern úr hverjum hópi, karla, konur og börn. Restinni var skipt í tvo hópa, milli skipseigenda og hermanna. VANGAVELTUR OG HUGLEIÐINGAR VIÐ 10. KAFLA 87

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=