85 andlitið, lét okkur opna munninn og sýna tennurnar og skoðaði hendurnar vel og vandlega. Loks benti hann á mig og sagði eitthvað, háum rómi. Umsvifalaust var ég rifinn út úr drengjahópnum. Þorgeir saup hveljur en gat ekkert sagt. Ég náði ekki að kveðja hann nema með augunum. Ég heyrði að pabbi kallaði á eftir mér: „Í guðs nafni haltu þinni trú, og gleymdu ekki katekismanum!“ Ég kallaði á móti: „Þeir geta farið með kroppinn eins og þeir vilja en sál mína skal ég geyma handa mínum góða guði.“ Pasha lét mig bíða meðan hann valdi sér fleiri fanga úr öllum hópunum. Mamma og pabbi voru ekki meðal þeirra sem hann valdi. Það síðasta sem ég sá til fjölskyldu minnar var að þau fóru saman með ríkmannlega búnum manni. „Ef vega ætti harm minn myndi hann vera þyngri en sandurinn í sjónum,“ heyrði ég að pabbi sagði og þyngslin helltust yfir mig. Hver er Pasha og hvernig metur hann fangana? Hvað meinar pabbi? Er hægt að mæla það sem hann ber sorg sína saman við?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=