Sjóræningjarnir eru komnir

84 Hvað er að gerast? Af hverju segir pabbi þetta? líka fólk til sölu, sem boðið var upp eins og hver annar varningur. Ég gat ekki horft á það. Nú var hópnum sundrað. Karlar og konur voru aðskilin og börn tekin frá foreldrum sínum. Minnstu börnin voru þó látin fylgja mæðrum sínum, svo að Systa og Jón litli fóru með mömmu í kvennahópinn. Ég var ekki svo heppinn, allir strákar sem voru eldri en sjö ára voru flokkaðir saman. Sölmundur litli var veginn og metinn en fékk að fylgja móður sinni. Hjartað í mér hamaðist og ég átti erfitt með anda. Ég var ekki tilbúinn að kveðja foreldra mína en skildi að það var raunin. Vonandi fengjum við Þorgeir þó að fylgjast að. Við gætum þá stutt hvor annan. Pabbi greip um axlirnar á mér og horfði beint í augun á mér. „Ég mun aldrei gleyma þér, sonur sæll, sökum skilnings þíns og lærdóms.“ Ég kom ekki upp nokkru orði. Borgarkóngurinn sem kallaðist Pasha var nú mættur á markaðinn. Hann gekk um með hendur fyrir aftan bak og mældi fangana út. Hann nam staðar fyrir framan hvern og einn okkar, rýndi í

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=