83 Hvaða dýr sér Egill þarna sem eiga ekki heimkynni á Islandi? spara það. Stundum fengum við ekki brauð vikum eða mánuðum saman. Hérna fengu bæði skepnur og fangar brauð. Við fengum líka volgt mýrarvatn að drekka sem var bragðvont en merkilega svalandi. Loks vorum við rekin inn á torg þar sem fjöldi manns var fyrir. Gólfið var steinlagt og sæti í kring, allt skínandi vel þrifið. Þetta var greinilega markaður því annríkið var mikið, fólk og dýr á þönum, karlar sem töluðu hátt og konur sem huldu andlit sitt með silki. Litlir apakettir skutust upp veggina og litríkir páfagaukar flögruðu um. Asnar og kameldýr báru alls kyns varning sem boðinn var til sölu. En það skelfilega var að á markaðnum var
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=