80 Hvernig líst Agli á húsin í Barbaríinu miðað við húsin í Vestmannaeyjum? Hver er munurinn á húsunum? á pabba en mamma bar Jón litla innan í skyrtunni sinni. Mér fannst húsin kuldaleg og flöt. Hér lágu engir strákar á grænni þekju og gæddu sér á hundasúrum. Ég sá fyrir mér bæinn minn heima, hlýlega timburgafla, fallega hlaðið torf til að príla upp á mjúka grasþekjuna. Minningin fuðraði allt í einu upp og Ofanleiti stóð í björtu báli. Ég saug upp í nefið. Það var ekkert eftir af gamla lífinu mínu, hvorki heimilið né draumarnir. Nokkrir karlmenn púluðu við að hvítþvo hús og hlekkirnir á fótum þeirra sýndu að þeir voru þrælar. Skyldi þetta verða framtíð mín, hugsaði ég, að skrúbba hús í þessu helvíti? Eða yrði ég neyddur til að gerast vatnssali? Ég horfði á menn sem gengu um með vatn til sölu, hoknir og þreytulegir. Örin á baki þeirra sýndu að þeir höfðu verið hýddir. Það sló mig að á suma þeirra vantaði hluta af eyra eða jafnvel nefi, eins og það hefði verið höggvið af. Ég reyndi að róa hugann með því að virða dýralífið fyrir mér. Úti um allt voru fuglar og margir þeirra í búrum. Þeir voru litríkir og stórir, á stærð við álftir en miklu skrautlegri, með fjaðraskúf fyrir stél.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=