75 ÚTSKÝRINGAR Á ORÐUM: Vesældarlegt fólk er aumingjalegt, ræfilslegt. Vígahnöttur er glóandi loftsteinn. Fnykur er skítafýla. Að tönnlast á einhverju er að endurtaka það oft. Hispania er Spánn. Litlu kvikindin sem fangarnir glíma við eru ekki bara pirrandi, því rottur og flær sem lifa á rottum geta borið sjúkdóma. Strákarnir sólbrenna og fá sólsting enda ekki vanir svona sterkri sól og miklum hita. Þarna er skipið komið suður fyrir Spán þar sem núna eru vinsælar sólarstrendur. Hvernig heldurðu að fólk hafi varist sólinni áður en sólarvörnin var fundin upp? VANGAVELTUR OG HUGLEIÐINGAR VIÐ 9. KAFLA
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=