73 Pabbi náði ekki að svara áður en óp kváðu við frá ribböldunum. Óttinn leyndi sér ekki í röddinni. Uppi varð fótur og fit þegar Múrat Flamenco öskraði. Þeir gripu til vopna og mönnuðu fallbyssurnar. „Þeir búast greinilega við árás,“ sagði Þorgeir og virkaði spenntur. „Ef til vill frelsar árásarliðið okkur.“ „Óvinur óvinar þíns er ekki endilega vinur þinn,“ sagði pabbi alvarlegur í bragði. Hvað merkir það sem pabbi segir? Hvernig tengist það aðstæðum þeirra?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=