Sjóræningjarnir eru komnir

62 Jón litli orgaði þegar pabbi lét vatn drjúpa á ennið á honum. Nú var hann skírður og kominn undir verndarvæng Guðs. Margrét grét líka þegar hún heyrði minnst á séra Jón og þakkaði pabba fyrir að heiðra minningu hans með nafninu, og þá fór mamma líka að gráta. Brátt grétum við öll. Svo sungum við skírnarsálminn saman: Þetta barn þér bífalað sé, blíði Jesú, vor lausnari. Í þína kristni það innleið, þyrm og frelsa frá allri neyð. ÚTSKÝRINGAR Á ORÐUM: Kverið var lítið trúarrit. Píslarvottur er sá sem þjáist eða deyr fyrir trúna. Séra Jón var drepinn fyrir trúna og eftir það var hann alltaf kallaður Jón píslarvottur. Hryggur merkir sorgmæddur. Karlfauskur er niðrandi orð um gamlan karl. Hvers vegna valdi pabbi nafnið Jón á litla drenginn?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=