61 „Vesalingurinn litli,“ sagði pabbi blíðlega. Svo rauk hann út úr tjaldinu. Skömmu síðar kom hann inn aftur með tvær skyrtur sem hann rétti mömmu. Hún vafði þeim strax utan um drenginn. „Það voru tveir ræningjar sem gáfu mér þetta handa drengnum,“ sagði pabbi og í örskamma stund var ég þeim þakklátur. Margrét tók eftir því. „Gleymdu aldrei að þetta eru morðingjar,“ sagði hún ströng. Ég leit á litla bróður minn og vissi að ég myndi engu gleyma. Hann var fæddur fangi um borð í sjóræningjaskipi og yrði kannski aldrei frjáls. Pabbi undirbjó skírnarathöfn í tjaldinu. Hann fór með bæn, blessaði drenginn og sagði: „Ég skíri þig Jón í höfuðið á vini mínum, séra Jóni píslarvotti.“
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=