Sjóræningjarnir eru komnir

Jón minn ögra sér en hann stóð við sína trú og fyrir það var hann drepinn.“ Margrét var orðin reið. „Morðingi hans er um borð í þessu skipi og hann þarf ég að sjá á hverjum degi, guð má vita hversu lengi.“ „Guð sé oss næstur,“ sagði mamma. Margrét fussaði. Nokkrum dögum seinna var mamma komin með mikla verki. Hún rak okkur öll út úr tjaldinu nema Margréti og sagðist bara vilja hafa góða konu hjá sér sem kynni að hjálpa til við barnsfæðingu. Pabbi vappaði áhyggjufullur utan við tjaldið og kipptist við í hvert sinn sem mamma æpti. Ég sat með Systu í fanginu og reyndi að rugga henni í svefn. Loks heyrðum við skæran barnsgrát og litum hvor á annan. Okkur var samt ekki létt fyrr en við heyrðum líka í mömmu. Ég fékk að koma inn í tjaldið þegar mamma hafði jafnað sig svolítið. Litla barnið lá í fanginu á henni og ég sá strax að það var strákur því hann var alveg nakinn. Ekkert klæði var til fyrir barnið, ekki einu sinni teppi eða dúkur til að vefja utan um litla skjálfandi líkamann. 60 Hvernig fundu ribbaldarnir fólkið í Rauðhelli?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=