Sjóræningjarnir eru komnir

55 7. KAFLI JÓN LITLI Næsta dag fóru ribbaldarnir í fleiri ránsferðir. Bátarnir voru í stöðugum ferðum að ferja fanga yfir í skipin. Með nýjum föngum bárust nýjar fréttir af hörmungum. Gudda í Stakkagerði var sett um borð ásamt sex ára syni sínum. Hún hafði dapurleg tíðindi að segja: „Þeir náðu séra Jóni í Kirkjubæ og drápu hann í Rauðhelli.“ Mamma veinaði. Séra Jón var móðurbróðir hennar og presthjónin í Kirkjubæ voru góðir vinir þeirra pabba. „Það eru hörmuleg tíðindi,“ stundi pabbi. „Menn segja að hann hafi dáið með kverið í höndum og guðs orð á vörum,“ sagði Gudda og þerraði augun. „Eins og sannur píslarvottur píslarvottur.“ Pabbi leit til himins. „Guð veri sál hans miskunnsamur.“ „Hvað með eiginmann þinn, Gudda mín?“ spurði pabbi síðan varfærnislega. Gudda hélt syni sínum þétt upp að sér. Hann beit á vörina þó að vantaði í hann framtennurnar. Orð til skoðunar: kverið píslarvottur hryggur karlfauskur

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=