ÚTSKÝRINGAR Á ORÐUM: Kinnfiskasoginn merkir með innfallnar kinnar (af hungri). Kaupskip er verslunarskip. Á þessum tíma máttu bara Danir stunda verslun á Íslandi, danskir kaupmenn sigldu til landsins með varning að selja. Að láta til skarar skríða merkir að leggja til atlögu / ráðast í eitthvað. Dýflissa er dimmt fangelsi. Fangarnir að austan Sjóræningjarnir gerðu árás á Austurlandi dagana 5.–13. júlí. Þeir rændu fólki af mörgum bæjum, einkum í Berufirði og Breiðdal, en tóku líka skepnur, kirkjugripi, silfur og önnur verðmæti sem þeir fundu. Þeir réðust einnig um borð í kaupskip í Djúpavogi, hirtu allan varninginn, rændu áhöfninni og sökktu síðan skipinu. Alls tóku sjóræningjarnir 110 Austfirðinga, auk dönsku áhafnarinnar af kaupskipinu, en níu voru myrtir. Fangarnir úr Heimaey Sömu sjóræningjar gerðu árás á Vestmannaeyjar 16.–19. júlí og rændu bæði fólki og verðmætum. Þeir tóku 247 manns í þessari árás og myrtu 37. Á þessum tíma bjuggu um 400 manns í Vestmannaeyjum. Geturðu reiknað út hversu margir íbúar voru eftir í Vestmannaeyjum eftir þetta? Nágrannalönd Sjóræningjar réðust í land í Færeyjum árið 1629 og í Baltimore á Írlandi 1631. Líklega voru sömu eða sambærilegir hópar að verki þar og á Íslandi 1627. Um 40 manns var rænt úr Færeyjum og 109 manns frá Írlandi. VANGAVELTUR OG HUGLEIÐINGAR VIÐ 6. KAFLA 54
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=